Tónlistarmyndband eftir Jón Sæmund -
Lag: Teitur Magnússon (af plötunni 33)
Texti: Teitur M. & Skarphéðinn Bergþóruson
Kysstu kistubotninn -
klæddu þig í sloppinn
sestu svo á koppinn
allur samanskroppinn
hvíldu á þér kroppinn
klífðu upp á toppinn
leyfðu mér að hoppa inn
og kyssa kistubotninn
slepptu takinu á takinu í bakinu
komdu upp úr brakinu og stattu þig í lakinu
hlauptu frá úrhrakinu með makindum
hættu að hanga í hakinu, gerðu það vinur