Hljómsveitin Hellvar tók lagið í beinni útsendingu úr Stúdíói 12 í Popplandi föstudaginn 11. nóvember.
Heiða Eiríksdóttir, Elvar Geir Sævarsson og Alexandra Ósk Sigurðardóttir sungu og spiluðu á gítar, Haukur Viðar Alfreðsson spilaði á bassa og Ólafur Ingólfsson spilaði á trommur. Sveitin tók þrjú lög. Einn nýtt, eitt nýlegt og eitt eldra koverlag og hér má sjá og heyra nýju lögin tvö, Falsetto og Ræ ræ ræ.