Upptaka úr Kastljósi RÚV 19. október 2011. Ekki hafði ég ímyndunarafl í að þeir myndu fá inni þarna, en enn á ný kemur Kastljósið mér skemmtilega á óvart, bravó! Það kemur sér líklega vel að eiga dyggan metalmann þarna í forsvari, takk Sigmar Guðmundsson.
Um lagið og frammistöðuna þarf ekki að fjölyrða, þetta lag er stórvirki sem gerir mann gjörsamlega háðan frá fyrstu spilun, stórkostlegt.